Dagur reykskynjarans 2024
Er í lagi með þinn reykskynjara?
Þetta litla en magnaða öryggistæki bjargar mannslífum svo það er mikilvægt að hugsa vel um þennan litla bjargvætt.
Eldur og reykur læðast um og láta ekki vita af sér, en það er skerandi hljóð reykskynjarans sem vekur þig ef eldur kemur upp á heimili þínu.
Hugsaðu vel um þinn reykskynjara!
Flóttaleið og flóttaáætlun
Mikilvægt er að allt heimilisfólk þekki flóttaleiðir
Staðsetning
Mikilvægt að staðsetja þá sem næst miðju lofts
Slökkvitæki
Mikilvægt er að slökkvitæki sé við flóttaleið.
Dagur reyskynjarans
HMS og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna taka höndum saman þann 1. desember ár hvert og ýta úr vör árlegu forvarnarátaki á degi reykskynjarans.
Hér að neðan má nálgast upplýsingar um eldri herferðir.



Dagur reykskynjarans 2023
Er reykskynjarainn þinn í lagi?
Reykskynjarinn vakir yfir þér og þínu fólki. Eldurinn læðist um og lætur ekki vita af sér, en það er skerandi hljóð reykskynjarans sem vekur þig ef eldur kemur upp á heimili þínu.
Fjöldi reykskynjara
Reykskynjarar eiga að vera í öllum rýmum heimilisins
Staðsetning
Mikilvægt að staðsetja þá sem næst miðju lofts
Prófanir
Prófið virkni reykskynjarans að lágmarki einu sinni á ári
Dagur reykskynjarans 2022
Ekki bíða, skiptu núna!
Nauðsynlegt er að hafa reykskynjara í öllum rýmum heimilisins, þetta litla en mikilvæga öryggistæki bjargar mannslífum.
Mikilvægt er að skipta reglulega um rafhlöðu í reykskynjaranum.
„Ekki bíða skiptu núna!“
Reykskynjarar
Ódýr öryggistæki sem geta bjargað mannslífum
Fjöldi reykskyjarar
Öllum rýmum heimilisins þar sem raftæki eru
Rafhlöður
Vera prófaðir reglulega, helst mánaðarlega (bíííb)
Dagur reykskynjarans 2021
Viðtal við Sólrúnu Öldu
Árið 2021 var unnið viðtal við Sólrúnu Öldu Waldorff sem brenndist alvarlega þegar eldsvoði kom upp í íbúð í Mávahlíð árið 2019 og deilir hún lífsreynslu sinni með okkur til að efla umræðuna á sviði forvarna.
Reykskynjarar
Ódýr öryggistæki sem geta bjargað mannslífum
Slökkvitæki
Öflug og geta slökkt í minniháttar eldum.
Flóttaleiðir
Öll heimili ættu að hafa skipulagðar flóttaleiðir og flóttaáætlanir.